Útsala!

80kg Handlóðapakkinn

Original price was: 119.997 kr..Current price is: 107.997 kr..

  • 2x stillanleg handlóð – allt að 40kg í hvora hönd
  • 17 þyngdarstillingar frá 5-40kg
  • Sterkbyggður SB2 lyftingabekkur með stillanlegu baki og sæti
  • Öflug og plásssparandi lausn fyrir heimaræktina
  • Hámarksþyngd á lyftingabekk: 250kg
Vörunúmer: 80kg-handlodapakkinn Flokkur: Brand: ,

Lýsing

Öflugur og fjölhæfur pakki fyrir þig sem vilt geta tekið alvöru styrktaræfingar heima án þess að þurfa stóran rekka af handlóðum. Í pakkanum færðu Hreysti SB2 stillanlegan lyftingabekk ásamt tveimur FitCo Econ stillanlegum handlóðum sem ná allt að 40kg hvort.

FitCo Econ handlóðin bjóða upp á 17 mismunandi þyngdarstillingar frá 5kg upp í 40kg. Afar einfalt er að skipta um þyngd með því að snúa handfanginu þegar lóðið situr í dokkunni. Þannig færðu mikið úrval þyngda án þess að þurfa fjölda stakra handlóða og stóran handlóðarekka.

Með allt að 40kg í hvora hönd hentar pakkinn bæði byrjendum og þeim sem eru komnir lengra í styrktaræfingum. Auðvelt er að byrja létt og auka þyngdina eftir því sem styrkurinn eykst.

Hreysti SB2 er sterkbyggður stillanlegur lyftingabekkur sem passar vel með þyngri handlóðaæfingum. Bakið hefur 6 stillingar og sætið 3 stillingar svo hægt er að finna góða stöðu fyrir meðal annars flata bekkpressu, hallandi pressur, axlapressur, flugur og róður.

Bekkurinn er með þykka og stífa púða með gripgóðu yfirborði og þolir allt að 250kg samanlagt álag frá notanda og lóðum. Hjól að aftan og handfang að framan gera einnig auðvelt að færa bekkinn til þegar æfingu lýkur.

Saman færðu allt að 80kg af stillanlegum handlóðum og sterkbyggðan fjölhæfan bekk sem gefur möguleika á fjölbreyttum styrktaræfingum fyrir allan líkamann á tiltölulega litlu plássi.

Þyngdarstillingar handlóða

Hvort handlóð býður upp á eftirfarandi þyngdir:

  • 5kg
  • 7kg
  • 9kg
  • 11kg
  • 13kg
  • 15kg
  • 18kg
  • 20kg
  • 22kg
  • 25kg
  • 27kg
  • 29kg
  • 32kg
  • 34kg
  • 36kg
  • 38kg
  • 40kg