Lýsing
Matcha er búið til úr fersku hágæða grænu te sem kallast Gyokuru.
Teblöðin eru meðhöndluð með gufu, síðan þurrkuð og mulin í steinmyllu þannig að engin næring úr teblöðunum fer til spillis.
Matcha er stútfullt af andoxunarefnum og er talið geta minnkað þreytu, aukið orku og jafnframt talið geta aukið grunnbrennslu líkamans.
Örlítið koffein er í Matcha sem gefur smá orkuskot sem er þó dempað af L-Theanine aminosýru sem Matcha er ríkt af ásamt fleiri aminosýrum.
Matcha er til í mörgum gæðaflokkum sem byggir m.a. á staðsetningu, loftslagi og aðferðum við ræktun og frágang.
Hlíðar Uji héraðs í Japan þykir henta einstaklega vel til te ræktunar þar sem er frjór jarðvegur, hreint vatn og hentugt loftslag.
Lífræna Matcha teið okkar kemur af ökrum mjög virtra framleiðanda í Uji héraði í Japan þar sem lögð er áhersla á 100% lífræna ræktun og viðurkenndar aðferðir þar sem plönturnar eru í skugga síðustu 3 vikur fyrir uppskeru sem stuðlar að hámarks amínóýrumagni í teblöðunum m.a. af L-Théanine.
Almennt er talað um 1, 2 og 3 uppskeru.
Prestige Ceremonial Grade Matcha er úr fyrstu uppskeru (1st harvest ) sem skilar að öllu jöfnu hæstu gæðum. Hentar vel í Matcha viðburði og fyrir þá sem kjósa aðeins það besta.
Premium Ceremonial Grade Matcha er einnig úr fyrstu uppskeru (1st harvest ) sem skilar að öllu jöfnu hæstu gæðum. Hentar vel í Matcha viðburði og dagleg not í hámarks gæðum.
Aðrar Matcha afurðir okkar koma úr annari uppskeru ( 2nd harvest ) sem gefur þeirri fyrstu lítið eftir og fullnægir öllum kröfum um hreinleika og gæði enda kemur mest selda Matchað okkar úr annari uppskeru sem er á frábæru verði miðað við gæði. Bragðmunur er á fyrstu og annari uppskeru og margir kjósa frekar afurðir úr annari uppskeru í þau not sem hentar þeim.
Þriðja uppskera er almennt ódýrara og gjarnan notað í eldhús, bakstur ofl og jafnframt af framleiðendum sem leggja eingöngu áherslu á lágt verð.
Okkar Matcha te er eingöngu úr fyrstu og annari uppskeru en hagstæð innkaup okkar gera okkur kleyft að bjóða vöruna á mjög sanngjörnu verði.