Lýsing
RB30 frá FitCo er nett en þægilegt þrekhjól með sætisbaki . Sætisbakið eykur þægindi á æfingu og byggingarlag hjólsins gerir þér auðvelt að setjast á hnakkinn. Hjólið byggir á segulmótstöðu sem þýðir að það er afar hljóðlátt og viðhaldsfrítt. Hjólið er búið 4kg kasthjóli sem skilar ágætis mótstöðu. Hámarksþyngd notanda er 110kg. Mælaborðið á hjólinu sýnir allar helstu upplýsingar svo sem milli hraða, tíma, vegalengd o.s.frv. Mælaborðið gengur fyrir rafhlöðum svo það þarf ekki að stinga hjólinu í samband. Á mælaborðinu er hilla fyrir snjalltæki. RB30 þrekhjólið er hugsað fyrir þá sem vilja nett þrekhjól með baki sem er nægilega kröftugt til að hægt sé að taka hressilega æfingu.
-
Mótstaða: Segulbremsa
-
Kasthjól: 4kg
-
Lengd sveifu: 18cm
-
Skjár sýnir: Tíma, vegalengd, púls, snúninga á mínútu, hraða og kaloríur
-
Æfingakerfi: 0
-
Mótstöðustig: 8
-
Sætisstillingar: Fram/aftur
-
Stillingar á baki: –
-
Púlsmælar: Já
-
Þarf að tengja við rafmagn: Nei
-
Hámarksþyngd notanda: 110kg
-
Stærð (LxBxH): 148cm x 61cm x 111cm
-
Stærð kassa (LxBxH): 89cm x 33cm x 57cm
-
Þyngd tækis: 32kg



