Lýsing
RX3 Lat Pull and Low Row Pad frá GetRXD er fjölhæfur aukahlutur fyrir RX3 og Builder Series rekka. Hann er hannaður til að nýtast bæði sem fótfesta í róðri og sem lærapúði í niðurtogi, þannig að þú getur fengið meiri notkun út úr kaplakerfinu í rekkanum.
Í róðri notarðu stálplötuna sem stöðuga fótfestu. Það hjálpar þér að halda betri stöðu þegar þú ert að gera low row, medium row eða high row æfingar með kapli. Í niðurtogi snýrðu aukahlutnum þannig að bólstruðu rúllupúðarnir halda lærunum niðri og gefa þér stöðugri stöðu í lat pulldown æfingum.
Aukahluturinn er með pop-pin stillingu og býður upp á 9 hallastillingar með 180° stillisviði. Það gerir þér kleift að stilla stöðuna eftir æfingu, líkamsbyggingu og því hvar aukahluturinn er festur á rekkanum.
RX3 Lat Pull and Low Row Pad er með svarta dufthúðun og ryðfría hlífðarplötu með laser-skornum stillimerkingum. Krómhúðaður pinni með rúnnuðum enda og 1″ mag pin gera festingu einfalda og stöðuga.
Aukahluturinn er hannaður fyrir 75 x 75mm uppistöður með 26mm götum. Hann hentar með RX3 línunni með 50mm millibili á götum og Builder Series rekkum með 40mm millibili. GetRXD mælir sérstaklega með að nota hann með RX3 Center Post, RX3 Military Bench eða beint á 75 x 75mm uppistöðu.