Lýsing
Eftir að hafa selt álíka saltblöndur frá öðrum merkjum í dágóðan tíma höfum við nú tekið skrefið í að láta framleiða fyrir okkur í magni saltblöndu sem er sérstaklega hugsuð fyrir þá sem þjást af POTS. Útkoman er örugg, aukaefnalaus blanda á mun betra verði en við gátum áður boðið frá erlendum merkjum. Blandan inniheldur auðmeltanlega saltblöndu sem að hjálpar þér að uppfylla saltþörf án þess að taka í leiðinni inn óþarfa bragð, litar eða önnur aukaefni.
Saltblandan kemur í jurtahylkjum sem eru í stærð sem auðvelt er að kyngja. Við mælum með því að fara eftir ráðleggingum heilbrigðisstarfsfólks varðandi skammtastærð.
Plasma er framleitt í Svíþjóð í verksmiðju sem er FSSC 22000 vottuð. Verksmiðjan starfar eftir HACCP og GMP verkferlum sem tryggja örugga, rekjanlega og stöðuga framleiðslu.
Heilbrigði er merki í eigu Hreysti.