Iron Gym Express upphífingastöng

5.999 kr.

  • Auðvelt að setja upp
  • Öryggisfestingar fylgja með
  • Tekin niður í einu handtaki
  • Hægt að taka upphífingar, armbeygjur, dýfur og fleira með stönginni
  • 100kg hámarksþyngd notanda

Ekki til á lager

Láta mig vita þegar vara kemur aftur

Vörunúmer: 31-igexp-n Flokkur:

Lýsing

Iron Gym Express upphífingarstöngin er entry level stöngin í línunni þeirra. Stöngin er örlítið þynnri en aðrar stangir í línunni og hentar því yngri notendum vel. Stöngin byggir á á einföldu vogarafli en með því að tylla stönginni á gereftið öðrum megin og láta svo enda stangarinnar liggja við hurðarammann hinum megin helst hún uppi þegar í henni er hangið (og álagið fer á vegginn).

Stöngin passar á veggi sem eru 12-16cm að þykkt og hurðagöt sem eru 60-80 cm breið. Stöngin kemur að sjálfsögðu með öryggisfestingum sem við mælum eindregið með því að nota. Öryggisfestingarnar eru litlar og því fer lítið fyrir þeim en viðbætta öryggið, sérstaklega þegar börn eru annars vegar, er afar gott að hafa.

Upphífingarstöngin kemur ósamsett í kassa með öryggisfestingum og skrúfum fyrir öryggisfestingarnar.