Lýsing
Ansi góður hita/kælipoki frá Koolpak en hann getur haldið hita/kulda í amk klukkutíma. Pokinn er fylltur með sérstöku geli sem er alveg laust við eiturefni. Gelið helst mótanlegt niður í -20 gráður og gerir pokann að góðum kosti til að ná til erfiðra svæða. Þessir pokar eru „luxury“ útfærsla sem þýðir í raun það að pokinn sjálfur heldur betur hita/kulda og minni líkur eru á bruna ef hann er notaður beint á húð.
Til að kæla: settu pokann í frysti í amk 10 mínútur áður en þú notar hann
Til að hita: Settu pokan í heitt vatn í tíu mínútúr eða settu hann í örbylgjuofn (800w) í 30 sek


