SBD Hnéhlífar 5mm Nova

15.799 kr.

  • Lyftingabúnaður frá SBD er af slíkum gæðum að þú getur aðeins vænst þess besta
  • 5mm þykkar hnéhlífar sem að henta vel í ólympískar lyftingar, crossfit og almenna styrktarþjálfun
  • 5mm þykkar hnéhlífar gefa meira eftir en 7mm hlífarnar og eru því betri í æfingar þar sem þörf er á fullri hreyfigetu
  • Hlífarnar eru IPF approved og IWF compliant
  • Neoprene efnið í hlífunum er í hæsta gæðaflokki og með „4-way stretch“
  • Allir saumar eru styrktir svo að ending er vægast sagt góð
  • Innra byrði hlífana er hannað svo að hlífarnar renni ekki til
  • Ytra byrði hlífana er slitsterkt og þolir síendurtekna árekstra við lyftingarstangir
  • Hannað og framleitt í Bretlandi – einkaleyfisvernduð hönnun
  • Hlífarnar eru seldar sem par
  • Stærð miðast við ummál hnés, sjá stærðarvísi neðar á síðunni
  • Sérútgáfa sem kemur í takmörkuðu upplagi
Vörunúmer: Á ekki við Flokkur: Merkimiðar: , Brand:

Lýsing

Fyrsta skiptið sem þú prófar SBD hnéhlíf er einstakt – það eru engar hlífar eins og þær á markaðnum. SBD byrjuðu með 7mm ofurþéttu hlífarnar sem henta frábærlega í kraftlyftingar og almennt mjög þungar lyftingar – þær eru svo stífar að það er hreinlega erfitt að ná „ass to grass“ hnébeygju í þeim.

5mm hlífarnar komu út nokkuð á eftir þeim 7mm en þær eru hannaðar meira með ólympískar lyftingar í huga. 5mm þykktin heftir ekki hreyfiferilinn en efnið sem SBD notar er engu að síður í hæsta gæðaflokki og því veita hlífarnar afbragðs stuðning og hita. Það að hlífarnar séu hannaðir fyrir ólympískar gerir þær einnig afar góðar í crossfit og í raun styrktarþjálfun almennt.

Sama hvort þú ert að reyna að ná nýju meti í snörun eða að passa hnémeiðsli þá eru 5mm hnéhlífarnar frá SBD fyrir þig.

Frekari upplýsingar

Brand

Hlífar fyrir

Hné

Stærðarvísir