Lýsing
Fyrsta skiptið sem þú prófar SBD hnéhlíf er einstakt – það eru engar hlífar eins og þær á markaðnum. SBD byrjuðu með 7mm ofurþéttu hlífarnar sem henta frábærlega í kraftlyftingar og almennt mjög þungar lyftingar – þær eru svo stífar að það er hreinlega erfitt að ná „ass to grass“ hnébeygju í þeim.
5mm hlífarnar komu út nokkuð á eftir þeim 7mm en þær eru hannaðar meira með ólympískar lyftingar í huga. 5mm þykktin heftir ekki hreyfiferilinn en efnið sem SBD notar er engu að síður í hæsta gæðaflokki og því veita hlífarnar afbragðs stuðning og hita. Það að hlífarnar séu hannaðir fyrir ólympískar gerir þær einnig afar góðar í crossfit og í raun styrktarþjálfun almennt.
Sama hvort þú ert að reyna að ná nýju meti í snörun eða að passa hnémeiðsli þá eru 5mm hnéhlífarnar frá SBD fyrir þig.