SBD Hnévafningar

9.499 kr.

  • Lyftingabúnaður frá SBD er af slíkum gæðum að þú getur aðeins vænst þess besta
  • Hnévafningarnir frá SBD koma í tveimur útfærslum:
  • Training gerðin er hönnuð með það í huga að þú getir vafið þig sjálf/ur og er því aðeins teygjanlegri en keppnisútgáfan
  • Competition gerðin gefur hámarks stuðning í þyngstu lyfturnar en þú þarft félaga til að aðstoða þig við að vefja
  • Vafningarnir koma í 2 stærðum: 2m sem er leyfð í öllum keppnum (t.d. IPF) og 2,5m sem er leyfð í flestum keppnum utan IPF og á flestum aflraunamótum
  • Hannað og framleitt í Bretlandi
  • Vafningarnir eru seldir sem par
Vörunúmer: Á ekki við Flokkur: Merkimiðar: , Brand:

Lýsing

Ný kynslóð af SBD hnévafningum!

Þróaðir, prófaðir og framleiddir í Bretlandi – byggja á öllum kostum eldri gerðar SBD hnévafningana og bæta um betur með allt að þúsund þráðum af gúmmíi og pólýester sem eru handvafnir og þræddir inn í efnið.

Training hnévafningarnir (þessir rauðu) eru hannaðir með það í huga að hægt sé að vefja sig sjálf/ur á æfingu, en fá samt hámarksstuðning við hnéð í átökunum.

Competition vafningarnir (þessir svörtu) eru hannaðir með það í huga að þú fáir algjöran hámarksstuðning við hnén í þínum allra þyngstu lyftum og eru það stífir að þú þarft að hafa félaga með þér á æfingu til þess að vefja þessum vafningum um hnén.

Vafningarnir eru framleiddir í tvenns konar lengdum – 2m og 2.5m.

2m er sú lengd sem leyfð er í öllum keppnum (IPF t.d.)

2.5m er sú lengd sem leyfð er í keppnum utan IPF og á flestum aflraunamótum.

Frekari upplýsingar

Tegund

Vafningar

Brand