Lýsing
Beltið sem breytti leiknum!
SBD kraftlyftingabeltið kom á markað árið 2016 og hefur síðan þá orðið eitt allra vinsælasta kraftlyftingabelti sem völ er á.
Það sem gerir SBD kraftlyftingabeltið svona vinsælt er hin svokallaða smellu-sylgja sem gerir notendum þess kleift að stilla hversu þröngt eða vítt þau vilja hafa beltið hverju sinni, með ótrúlega auðveldum hætti.
SBD beltin eru unnin úr hágæða leðri sem verkuð eru á sérstakan hátt í fimm mánuði til þess að tryggja hámarks endingu og styrk beltisins.
SBD beltin standa fyrir gæði og endingu
- Beltin eru framleidd í níu stærðum, frá XS-5XL svo að langflest ættu að finna þá stærð sem þau þurfa
- Á beltunum er svört olíuáferð á ekta ensku leðri og rautt rúskinn að innanverðu
- Beltið er 13 mm þykkt og 10 cm breitt
- Beltið er leyft í keppni og samþykkt af Alþjóða kraftlyftinga sambandsins (IPF)
