Lýsing
Ný og uppfærð útgáfa af hinum klassísku og sívinsælu SBD olnbogahlífum!
SBD olnbogahlífarnar veita þér hámarks stuðning og aðhald við olnbogana á sama tíma og þú heldur fullum hreyfiferli um liðinn.
SBD olnbogahlífarnar eru gerðar úr sama hágæða neoprene efni og notað er í SBD hnéhlífarnar, en með þynnra innra lagi og henta því fullkomlega til þess að halda hita á og styðja við olnbogana á þér í þungum tog- og pressuæfingum.
- Seldar í pörum
- Olnbogahlífarnar eru gerðar úr bæði 5mm (innra lagið) og 7mm (ytra lagið) neopren efni
- Styrktir saumar til þess að hámarka endingu olnbogahlífanna
- „Antimicrobial“-meðferð á efninu sem dregur úr uppsöfnun baktería innan í hlífunum og dregur úr lykt.
- Framleiddar í Bretlandi