Taurus MS20 Multi Functional Smith

449.999 kr.

  • „All in one“ styrktartæki fyrir heimarækt
  • Sameinar smith vél, frjálsa stöng og kaplavél
  • Í raun 6 æfingastöðvar í einu tæki: Smith vél, kaplavél, lyftingarekki, upphífislá, dýfuslá og Landmine
  • Innbyggð geymsla fyrir 50mm plötur (4 pinnar)
  • Smith vélin er búin öryggisstoppurum
  • Kaplavélin er með 2:1 köplun sem gerir hreyfingar mjúkar
  • Með fylgja: 2 kaplahandföng, dýfuslá, Stangarhaldarar, öryggisslár, klemmur og bólstraðir púðar
  • Hámarksþyngdir: Dýfuslá 200kg, upphífislá 180kg, Kaplavél 200kg per hlið, smith vél 200kg, lyftingarekki 275kg
  • Stærð uppsett (L x B x H): 160 x 200 x 221cm

Á lager

Vilt þú bæta við?

Samsetning Flókin (aðeins á höfuðborgarsvæðinu)
59.999 kr.
Vörunúmer: 22-tf-ms20 Flokkar: , , , Brand:

Lýsing

Taurus MS20 Pro er fjölnota styrktarstöð sem gerir þér kleift að æfa allan líkamann á einu tæki.

Kjarninn í tækinu er smith vél sem er stillanleg í 14 þrepum. Hún hjálpar þér að halda góðri tækni í æfingum eins og hnébeygju og bekkpressu og gerir þér kleift að æfa á öruggan máta heima fyrir.

Auk þess er tækið með tveimur stillanlegum köplum (22 stillingar) sem gefa mikla fjölbreytni í æfingum. Þú getur auðveldlega unnið með mismunandi vöðvahópa og breytt æfingum eftir markmiðum.

MS20 Pro býður upp á 6 æfingastöðvar í einu tæki, þar á meðal:

  • smith vél
  • kaplastöð
  • upphífistöng
  • dip stöð
  • Lyftingastöð
  • core/landmine tengi

Þetta gerir þér kleift að framkvæma allt frá grunnæfingum upp í fjölbreyttar styrktaræfingar fyrir allan líkamann.

Öryggi er stór hluti af hönnuninni. Tækið er með tvöföldu öryggiskerfi, stillanlegum öryggisstuðningum og sterkri grind, þannig að þú getur æft af öryggi jafnvel með þungum lóðum.

Ef þú vilt byggja upp alvöru heimarækt með einu tæki, þá er MS20 Pro mjög öflug og fjölhæf lausn sem hentar bæði byrjendum og lengra komnum.

Frekari upplýsingar

Brand

Innbygður lóðabunki

Ekki innbyggður lóðabunki

Æfingar fyrir

Efri líkama, Neðri líkama

Gæðastaðall

Fyrir heimahús

Festingarmöguleikar

Frístandandi

Úrtök

Hægt að stilla