Lýsing
Frábær pakki fyrir þig sem vilt koma þér upp fjölhæfri heimarækt án þess að fórna miklu plássi. Í pakkanum færðu FitCo stillanlegan lyftingabekk ásamt tveimur FitCo Econ stillanlegum handlóðum sem ná allt að 24kg hvort.
Stillanlegu handlóðin koma í staðinn fyrir stórt sett af hefðbundnum handlóðum. Hvort handlóð býður upp á 15 mismunandi þyngdir frá 2,5kg upp í 24kg og afar einfalt er að skipta um þyngd með því að snúa handfanginu á meðan lóðið situr í dokkunni. Þú getur því farið hratt á milli æfinga og þyngda án þess að þurfa heilan rekka af handlóðum.
FitCo lyftingabekkurinn passar einstaklega vel með stillanlegu handlóðunum og opnar á enn fleiri æfingamöguleika. Bakið hefur 8 stillingar, frá niðurhallandi stöðu upp í upprétta stöðu, og sætið hefur 4 stillingar. Þannig er meðal annars hægt að taka flata bekkpressu, hallandi pressur, axlapressur, flugur, róður og fjölda annarra æfinga.
Bekkurinn er einnig samanbrjótanlegur svo auðvelt er að minnka plássið sem hann tekur þegar æfingu lýkur.
Saman er þetta sérlega þægileg lausn fyrir heimaræktina – allt að 48kg heildarþyngd og fjölhæfur bekkur, pakki sem tekur afar lítið pláss.
Þyngdarstillingar handlóða
Hvort handlóð býður upp á eftirfarandi þyngdir:
- 2,5kg
- 3,5kg
- 4,5kg
- 5,5kg
- 6,5kg
- 8kg
- 9kg
- 10kg
- 11,5kg
- 13,5kg
- 16kg
- 18kg
- 20,5kg
- 22,5kg
- 24kg