Útsala!

50kg heimapakkinn

Original price was: 72.998 kr..Current price is: 65.698 kr..

  • Stillanlegur lyftingabekkur sem hentar í fjölda æfinga
  • 50kg lyftingasett með 182cm stöng og 2 handlóðastöngum
  • Lóðaplöturnar passa bæði á stóru stöngina og handlóðastangirnar
  • Hægt að kaupa auka 25mm lóðaplötur eftir því sem þú styrkist
  • Hámarksþyngd á lyftingabekk: 200kg

York Fitness lyftingabekkur

  • Einn sá alvinsælasti
  • Vandaður heimabekkur með þéttum púðum
  • Hægt að stilla bak
  • Bekkurinn er með hjól á grunni svo auðvelt er að færa hann til
  • Hægt er að geyma bekkinn svo gott sem uppréttan
Vörunúmer: 50kg-heimapakkinn Flokkur: Brand: ,

Lýsing

Fjölhæfur pakki fyrir þig sem vilt koma þér upp góðum grunni fyrir styrktaræfingar heima. Í pakkanum færðu York Fitness stillanlegan lyftingabekk ásamt 50kg lyftingasetti með stórri lyftingastöng, tveimur handlóðastöngum og úrvali lóðaplatna.

York Fitness bekkurinn er einn af okkar vinsælustu heimabekkjum. Hann er einfaldur og sterkbyggður með þéttum púðum og stillanlegu baki, þannig að hægt er að taka fjölbreyttar æfingar í mismunandi stöðum. Hann hentar sérstaklega vel fyrir handlóðaæfingar eins og bekkpressu, hallandi pressur, axlapressur, flugur og róður.

Bekkurinn er með hjólum að aftan svo auðvelt er að færa hann til og hægt er að geyma hann svo gott sem uppréttan þegar hann er ekki í notkun.

50kg lyftingasettið inniheldur 182cm lyftingastöng, tvær handlóðastangir og lóðaplötur. Allar stangirnar eru fyrir 25mm lóðaplötur þannig að auðvelt er að færa þyngdina á milli stanganna eftir því hvaða æfingu þú ert að framkvæma.

Stóra stöngin opnar síðan á enn fleiri æfingar, meðal annars réttstöðulyftur, róður og ýmsar standandi styrktaræfingar. Ef nota á stóru stöngina í bekkpressu þarf lyftingastand eða rekka til viðbótar.

Við seljum einnig stakar 25mm lóðaplötur þannig að auðvelt er að bæta meiri þyngd við settið síðar eftir því sem þú styrkist.

Pakkinn inniheldur

  • 1x York Fitness lyftingabekk
  • 1x 182cm lyftingastöng með festingum
  • 2x handlóðastangir með festingum
  • 4x 5kg lóðaplötur
  • 6x 2kg lóðaplötur
  • 6x 1,25kg lóðaplötur
  • 1x taska fyrir lyftingasettið

Frekari upplýsingar

York Fitness lyftingabekkur

Vara

Stillanlegur lyftingabekkur

Samanbrjótanlegt

Ekki samanbrjótanlegt

Hámarksþyngd (notandi+lóð)

151-200kg