Lýsing
Frábær heimaræktarpakki fyrir þig sem vilt geta tekið fjölbreyttar styrktaræfingar heima án þess að fylla herbergið af búnaði. Í pakkanum færðu York Fitness 540 lyftingabekk ásamt 50kg lyftingasetti með stórri stöng, tveimur handlóðastöngum og lóðaplötum.
York Fitness 540 sameinar lyftingabekk og hnébeygjurekka í einni græju. Standana er hægt að stilla í mismunandi hæðir og nota bæði fyrir bekkpressu og hnébeygjur. Bakið á bekknum hefur 5 stillingar, frá niðurhallandi stöðu upp í alveg upprétta, þannig að hægt er að taka meðal annars bekkpressu, hallandi pressur og sitjandi axlapressur.
Á bekknum er einnig fótaarmur fyrir fram- og aftanlærisæfingar. Hann tekur 25mm lóðaplötur og því er hægt að nota sömu plötur og fylgja með lyftingasettinu. Á rekknum eru auk þess geymsluhankar fyrir lóðaplötur svo auðveldara er að halda æfingaaðstöðunni snyrtilegri.
50kg lyftingasettið inniheldur 182cm lyftingastöng, tvær handlóðastangir og úrval lóðaplatna. Sömu 25mm plöturnar passa á stóru stöngina, handlóðin og fótaarminn á bekknum, svo auðvelt er að færa þyngdina á milli eftir æfingum.
Við seljum einnig stakar 25mm lóðaplötur, þannig að auðvelt er að bæta meiri þyngd við pakkann síðar eftir því sem þú styrkist.
Þegar æfingu lýkur er hægt að brjóta bekkinn saman svo hann taki minna gólfpláss. Þetta er því sérstaklega fjölhæfur pakki fyrir heimaræktina sem gefur möguleika á æfingum fyrir nánast allan líkamann.
Pakkinn inniheldur
- 1x York Fitness 540 lyftingabekk
- 1x 182cm lyftingastöng með festingum
- 2x handlóðastangir með festingum
- 4x 5kg lóðaplötur
- 6x 2kg lóðaplötur
- 6x 1,25kg lóðaplötur
- 1x taska fyrir lyftingasettið
Helstu mál o.fl.
York Fitness 540 lyftingabekkur
- Bekkur og hnébeygjurekki í einni græju
- 5 stillingar á baki
- Hæðarstillanlegir standar
- Fótaarmur fyrir fram- og aftanlæri
- Geymsluhankar fyrir lóðaplötur
- Hægt að brjóta saman
- Stærð (L x B x H): 201 x 94 x 148cm
- Samanbrotinn (L x B x H): 86 x 94 x 165cm
- Þyngd: 47kg
- Hámarksþyngd notanda: 100kg
- Hámarksþyngd lóða: 150kg
- Hámarksþyngd samtals: 250kg