Lýsing
Næsta kynslóð af hinum sívinsælu SBD úlnliðsvafningum!
Þessir úlnliðsvafningar eru uppfærð útgáfa af klassísku SBD úlnliðsvafningunum sem kraftaíþróttafólk um allan heim reiðir sig á. Úlnliðsvafningarnir koma eins og áður í tveimur stífleikum – stiff og flex og í þremur stærðum/lengdum – Small (40cm), Medium (60cm) og Large (100cm).
Þú ættir því að finna úlnliðsvafninga sem henta þér og þinni þjálfun hjá okkur.
Flex – eru hannaðir til þess að styðja vel við úlnliðina en gera þér þó kleift að sveigja úlnliðinn eftir þörfum. Hönnunin á þessum vafningum gerir það að verkum að vafningarnir laga sig að úlnliðnum og halda þægilega við liðinn í sveigðri stöðu.
Stiff – eru hannaðir til þess að halda mjög þétt við úlnliðinn þannig að hann sveigist ekki en valda þó ekki óþægindum þrátt fyrir stífleika vafninganna.
SBD úlnliðsvafningarnir eru:
– seldir í pörum
– leyfðir í keppnum á vegum IPF, þar sem þeir eru í hámarksbreidd (8cm) og eru til upp í hámarks leyfða lengd (100cm)
– með sérhannaðri breiðri teygju sem eru þróaðar og framleiddar sérstaklega til þess að veita úlnliðunum hámarksstuðning
– í hverjum pakka er hægri og vinstri úlnliðsvafningur til þess að tryggja það að þú getir vafið báða úlnliði jafnt
– framleiddir í Bretlandi