Útsala!

York 530 heimapakkinn

Original price was: 87.998 kr..Current price is: 79.198 kr..

  • Nettur bekkpressubekkur sem hentar minni og lágvaxnari notendum
  • 50kg lyftingasett með stórri stöng og 2 handlóðastöngum
  • Fótaréttuarmur – hægt að nota lóðaplöturnar úr settinu
  • Hægt að kaupa fleiri 25mm lóðaplötur eftir því sem þú styrkist
  • Hámarksþyngd á lyftingabekk: 200kg
Vörunúmer: york-530-heimapakkinn Flokkur: Brand: ,

Lýsing

Góður og fjölhæfur byrjendapakki fyrir heimaræktina, sérstaklega fyrir minni og lágvaxnari notendur. Í pakkanum færðu York Fitness 530 lyftingabekk ásamt 50kg lyftingasetti með stórri stöng og tveimur handlóðastöngum.

York Fitness 530 er nettur bekkpressubekkur með áföstum lyftingastandi og fótaréttuarmi. Bæði bak og sæti eru stillanleg og því hægt að framkvæma fjölda mismunandi æfinga, meðal annars flata bekkpressu, hallandi pressur og axlapressur.

Bekkurinn er í minni kantinum og hentar því best minni og lágvaxnari notendum. Fyrir hávaxna notendur mælum við frekar með stærri lyftingabekkjum þar sem lengri bakpúði og meira rými gefa betri æfingastöðu.

Á enda bekksins er fótaréttuarmur fyrir fram- og aftanlærisæfingar. Þar sem hann tekur 25mm lóðaplötur er hægt að nota sömu plötur og fylgja með lyftingasettinu.

50kg lyftingasettið inniheldur eina 182cm lyftingastöng, tvær handlóðastangir og úrval lóðaplatna. Sömu plöturnar passa á stóru stöngina, handlóðastangirnar og fótaréttuarminn, þannig að auðvelt er að færa þyngdina á milli eftir æfingum.

Við seljum einnig stakar 25mm lóðaplötur svo hægt er að bæta meiri þyngd við settið síðar eftir því sem þú styrkist.

Pakkinn inniheldur

  • 1x York Fitness 530 lyftingabekk
  • 1x 182cm lyftingastöng með festingum
  • 2x handlóðastangir með festingum
  • 4x 5kg lóðaplötur
  • 6x 2kg lóðaplötur
  • 6x 1,25kg lóðaplötur
  • 1x taska fyrir lyftingasettið

Helstu mál o.fl.

York Fitness 530 lyftingabekkur

  • Stillanlegt bak
  • Stillanlegt sæti
  • Hæðarstillanlegur lyftingastandur
  • Áfastur fótaréttuarmur
  • Stærð (L x B x H): 165 x 72 x 100cm
  • Þyngd: 25kg
  • Hámarksþyngd notanda + lóða: 200kg